Gestur
Þetta er ekkert smá magn af dóti sem þarf að pakka..og ég verð að viðurkenna að ég á ekki lítið af því..humm. Ég er búin að henda..humm, ca. 2 stórum ruslapokum og fylla aðra tvo af fötum til að gefa og týna dót til að gefa í kassa..og ekki er ég búin.
Ég fæ annars óvænta (humm, kannski ekki óvænta beint, því ég veit af því…) heimsókn í kvöld. Sigurjón er að koma til Íslands að vinna um helgina, fer síðan aftur til DK aðfaranótt mánudagsins og vinnur þar mánudag og þriðjudag og kemur síðan aftur til Íslands…svaka flakk
Krullið dafnar annars bara vel (að mínu mati..hehe) og fær nóg að borða ![]()