blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

minimie síðan

aldis klukkan 16:17, 25 July 2007

Jæja, núna er loksins búið að henda upp minime síðu…en þar er nú samt bara að sjá sónarmyndirnar. Sennilega verpur ekki mikil hreyfing á síðunni fyrr en e-n tíman í nóvember..hehe Slóðin er www.minime.aldisrun.com

Finnur komst loksins af sjúkrahúsinu og úr landi í gærkvöldi, og er núna veikur heima sjá sér.

Er að vinna í myndunum, en Grjóni var búinn að skella inn myndum úr brúðkaupinu og saumaklúbbnum sem ég fór í á Íslandi. Myndasíðan er á www.myndir.aldisrun.com

Danski kúrinn..

aldis klukkan 10:32, 24 July 2007

..extreme útgáfan.
Finnur var orðinn slappur á föstudaginn og endaði hvorki meira né minna en á sjúkrahúsi um nóttina..og þar er hann enn. Virðist hafa fengið slæma bakteríusýkingu og fær þar næringu og sýklalyf í æð. Þetta var nú ekki góður endir á brúðkaupsferðinni, en Unnur fór heim í gær og vonandi kemst Finnur heim í kvöld. Mæli nú ekki með þessari megurnaraðferð…

Í dag var annars þvottadagurinn mikli hjá mér, þvoði 5 vélar (og þetta eru ekki litlar vélar)…hehe.

Sommerland Sjælland

aldis klukkan 11:15, 21 July 2007

Við (ég, Grjóni, Finnur og Unnur) skelltum okkur í Sommerland Sjælland í gær..sem hefði reyndar sennilega litið betur út ef við hefðum verið með börn með okkur..hehe. Maður borgr sig bara inn og svo er allt “dótið” innifalið. Hápunkturinn var sennilega vatnssvæðið, þar voru rennibrautir af ýmsum gerðum. Hin þrjú fóru að meira að segja í svona “free fall” sem gengur út á það að renna sér nánast lóðrétt niður 17 m og reyna svo að ná sundfötunum lítið áberandi úr skorunni..en ég var aðallega í því að liggja og sóla mig og taka myndir. Talandi um myndir þá lofa ég að setja inn myndir eftir helgina.

Ég er annars svakalega ánægð með hvað það komu mörg komment á síðustu færslu..jeij og ég reyni að plata Grjóna til að hjálpa mér með minime síðuna sem fyrst.

Litla stelpan þeirra Guðrúnar Bjargar og Eyþórs kom loksins í heiminn 18/7 og þá hvorki meira né minna en 20 dögum eftir settan dag. Ég er ekki ennþá búin að kíkja á hana en stefni á það sem fyrst..jeij

Föst í DK

aldis klukkan 9:29, 13 July 2007

Jæja, við erum komin aftur til DK og Finnur og Unnur eru í heimsókn (brúðhjónin) en þau eru í annarri íbúð. Planið var að reyna að finna e-a ódýra sólarlandaferð í viku..en þar sem það er búið að vera svo leiðinlegt veður hérna er ALLT uppselt (þangað til um miðjan ágúst)! Mér skilst samt að veðrið eigi að fara að skána. Plan B er að gera e-ð sniðugt í DK og fara á bínum í stutta ferð til Þýskalands. Spurning hvort nýja loftkælingin verði ekki að vera stillt í botn, bara svona prinsipp..hehe

Mamma og Pabbi eru líka komin til DK og eru komin með íbúðina sína og líst bara ágætlega á. Stíllinn er kannski pínu unglingalegur, allt svart og hvítt…en það hlýtur að venjast.

Ég verð að afsaka að vera ekki búin að starta undisíðunni minime.aldisrun.com en ég þarf að plata Grjóna til að hjálpa mér. Heilsan er annars bara fín og bumban stækkar og stækkar. Krullið er orðið kraftmeira í spörkunum, svo það er farið að finnast utanfrá. Spurning hvort þetta séu kannski forhandarloop, kóngspeð fram eða snögg skátakveðja…hehe

austur á morgun

aldis klukkan 14:49, 5 July 2007

Já, Sigurjón er aftur kominn til landsins og við fljúgum austur á Egilstaði á morgun..brúðkaupið er á laugardaginn (surprize..hehe). Við erum bara búin að vera að útrétta í dag, fara í banka, LÍN, skattinn, klippingu og svoleiðis.

Mamma og pabbi komust loksins af stað í gær eftir mikið pakk.

Nenni ekki að skirfa meira, netið hérna er alltaf að detta út…