blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

komin heim

aldis klukkan 7:41, 31 August 2007

Jæja, þá erum við komin aftur heim til DK eftir mátulegan skammt af sól og hita. Það rigndi reyndar einn daginn..en annars var mestmegnis sól og um og yfir 30 gráðu hiti. Ferðin var fín og við vorum bara í rólegheitunum.

Sólrún er í heimsókn í DK…jeij, planið er að leika við hana í dag. En í dag er síðasti dagurinn minn í sumarfríinu, því skólinn byrjar á mánudaginn.

Anna (tengdó) á síðan stórafmæli á sunnudaginn og verður dagurinn haldinn hátíðlegur hérna í DK.

Krullið hefur verið mjög fjörugt undanfarið og um daginn heyrði Grjóni hjartsláttinn grreinilega þegar hann lagði eyrað við magann á mér.

elta sólina..

aldis klukkan 19:05, 24 August 2007

..já við Grjóni erum að fara til Spánar á morgun. Fljúgum til Alicante, þar sem tengdó eru með íbúð á leigu og verðum í 4 nætur..sem sagt stutt en vonandi sæmilega sólríkt :)

Það var annars rosa gaman að hafa stelpurnar í heimsókn..er búin að skutla þeim útá flugvöll núna. Við vorum ansi duglegar að versla, þá sérstaklega Guðrún..hehe.

Tinna kom með fullt af prjónadóti (á krullið) sem hún og mamma hennar eru búnar að gera..allt svaka fínt og GG kom með sængurgjöf til mín (bók og geisladiskur sem ég má skoða þegar þar að kemur)…jeij pakkar.

Krullið var annars lengi framan af feimið við að sýna sig (sparka) en fór samt á kostum í gærkvöldi þegar það gat ekki ákveðið sig hvar það ætlaði að vera..hehe. Maginn á mér afmyndaðist alveg þegar það skipti nokkrum sinnum um hlið…þetta atferli vakti mikla lukku viðstaddra.

Ætli maður verði ekki bráðum að fara að pakka…

“pæn størrelse”

aldis klukkan 12:51, 20 August 2007

Var að koma heim frá ljósmóðurinni og það var bara allt í góðum gír. Hún þreifaði magann og fann hvernig barnið lá, sagði síðan að það væri of snemmt að segja til um hvað það er orðið stórt en að hún gæti nú samt fundið að það væri af “pæn størrelse”…sem sagt frekar stórt..hehe

Tengdó voru annars í heimsókn um helgina en eru núna farin til Spánar en GG og Tintin koma í heimsókn á morgun :)

foreldrafræðsla

aldis klukkan 11:22, 14 August 2007

Í gær fórum við Sigurjón á annað foreldrafræðslukvöldið af þremur sem boðið er uppá á sjúkrahúsinu. Þetta eru tveggja tíma fræðslukvöld/seinnipartar um meðgöngu og fæðingu og e-ð. Þetta hefur verið ágætt, en ekkert mikið nýtt komið fram (mikið svona almennt sem maður hefur annað hvprt heyrt eða lesið áður). Síðan hafa verið sýnd nokkur myndbönd um fæðingar… svo skoðuðum við fæðingardeildina og það var mjög fínt. Síðasta skiptið er næsta mánudag.

komin heim..

aldis klukkan 6:48, 11 August 2007

..við mamma komumst að því í check inn-inu á leiðinni til baka að Sterling er með 15 kg þyngdartakmark (en ekki 20 kg) og hvert kg eftir það kostar 6 pund. Við sem vorum vissar um að vera ekki yfir 40 kg saman, settum bækur í töskurnar til að þurfa ekki að hafa það í handfarangri og vorum þá komnar uppí ca. 38 kg…humm. Ég fékk að taka bækurnar upp og við sluppum með fýlusvip og ræðu með okkar 34 kg.

Tengdó koma annars við næstu helgi og svo aftur 10 dögum seinna og GG og Tinna koma í heimsókn á milli…jeij

stærðir

aldis klukkan 18:59, 9 August 2007

Já, það er auðvelt að gleyma sér í innkaupunum.

Ég er einmitt búin að fá nokkrar ábendingar um að kaupa ekki of mikið af minnstu fötunum. Hef einmitt verið að velta því fyrir mér hversu stórt barnið verður við fæðingu og þar sem ég var nú heilar 18 merkur þorði ég nú ekki að kaupa mjög lítil föt…en þetta kemur nú í ljós.

Við mamma fljúgum annars snemma á morgun til baka til DK.

bloggað frá Brighton

aldis klukkan 9:30, 9 August 2007

Já, ég er stödd í Brighton með mömmu og Sólrúnu. Við erum búnar að hafa það gott og labba mjöööög mikið (iljarnar finna fyrir því).

Það er mikið af skemmtilegum búðum og endalaust til af skemmtilegri gjafavöru. Ég er annars mest búin að kaupa samfellur..hehe..í gulu, grænu og hvítu. Ætli ég verði ekki bara að koma aftur seinna til að kaupa aðra liti.

Mér kom annars á óvart hvað það er mikið til í pínulitlum stærðum..sem kallast tiny baby og er fyrir 2,4 kg (svo kemur newborn 3,2 kg, up to 1 month 4,5 kg og up to 3 months 6 kg) og það minnsta sem ég hef séð var fyrir 1,6 kg..magnað en auðvitað þurfa e-rjir á því að halda.

Jæja, best að fara að koma sér út og eyða peningum ;)

bless, bless..

aldis klukkan 9:51, 4 August 2007

..húsaleigubætur. Við fórum samviskusamlega í kommúnuna fyrir nokkru og létum vita að Sigurjón væri kominn með vinnu og gáfum upp tekjur hans. Núna erum við búin að fá bréf þess efnis að við eigum ekki lengur rétt á húsaleigubótum. Auk þess þurfum að endurgreiða bæturnar frá því í mars..humm..en svo sem alveg eðlilegt.

Það er annars helst í fréttum að ég er að fara með mömmu til Brighton á þriðjudaginn, þar sem við hittum Sólrúnu. Við leikum síðan saman þangað til á föstudag..jeij. Hver veit nema ég komi með e-r lítil föt heim..hehe

Ég er annars búin að skrá mig í kúrsa (fullt nám) en það verður síðan bara að koma í ljós hvað ég endist.

breytingar í gangi

aldis klukkan 10:41, 1 August 2007

Við (mest ég, því ég er heima á daginn..hehe) erum búin að vera að breyta aðeins hjá okkur. Nánar til tekið að minnka aðeins dótið inní svefnherbergi til að pláss verði fyrir Krullið þegar þar að kemur. Það er sem sagt búið að pakka heilum helling í kassa og fara með í geymsluna (city self-storage), mest skólabókum og fötum sem ég passa ekki í eins og er. Þannig að núna er frekar tómlegt inní herbergi..hehe

Ég er annars loksins búin að setja inn myndir frá heimsókn þeirra Finns og Unnar. Ég skellti líka inn myndum frá því ég kíkti á litlu stelpuna þeirra Guðrúnar Bjargar og Eyþórs. Eins og sjá má á þeim myndum var ég á fullu að æfa mig :)