blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

myndir, dagur 2 og 3

aldis klukkan 17:57, 31 October 2007

Sigurjón skellti inn myndum í morgun frá öðrum og þriðja degi í lífi nýja fjölskyldumeðlimsins. Þetta albúm sem við erum að nota á netinu er nú kannski ekki alveg það besta..en til að skoða myndirnar er best að smella á fyrstu myndina, velja síðan view fullsize image og fletta svo fram og aftur að vild :)

Það er annars kominn vetrartímai hérna í DK, svo við erum bara einum tíma á undan Íslandi núna. Þessi skipting átti sér stað aðfaranótt sunnudagsins..en þá höfðum við nú um annað að hugsa..hehe

Sigurjón skrapp í smá pabbaleiðangur í dag eftir bleyjum og bleyjuklútum/taubleyjum. Hann keypti líka ömmustól og svona boga til að festa á hann frá langömmu Möllu. Krulla mátaði stólinn í dag og var bara ansi sátt við hann.

Á morgun kemur síðan “sundhedsplejerske” (hjúkrunarfræðingur í ungbarnaeftirliti segir orðabókin) frá kommúnunni að taka okkur út..hehe. Held að hennar hlutverk sé að koma og gefa okkur góð ráð og fylgjast aðeins með litlu dömunni.

home sweet home

aldis klukkan 14:45, 30 October 2007

Við fórum heim af spítalanum um hádegi í dag. Áður en við fórum heim fengum við nokkur heilræði og síðan aðstoð við fyrsta baðið. Hún var sátt fyrstu 10 sekúndurnar í baðinu..en þá var líka ekkert gaman lengur..hehe. Síðan klæddum við hana í minni heimferðarfötin (upphaflega áttum við náttúrulega von á trölli) og tókum saman dótið. Það voru nú alveg nokkrar ferðir sem Sigurjón þurfti að fara útí bíl með gjafir og fleira..takk fyrir okkur.

Krullunni líst annars bara vel á nýja heimilið og amma og afi (mamma mín og pabbi) voru snögg að mæta á svæðið með bakarísdót og gotterí handa litlu fjölskyldunni :)

Núna erum við bara hérna heima í rólegheitunum og að ná áttum..en á morgun fær Krulla að hitta hinn afa sinn.

Sigurjón skellir kannski inn fleiri myndum í kvöld. Við þökkum annars kærlega fyrir allar kveðjurnar, gaman að sjá hvað það eru margir að fylgjast með.

Krullið mætt á svæðið

aldis klukkan 16:15, 28 October 2007

Það koma loksins í ljós að krullið er krulla. Hún fæddist kl 19.03, 27. október. Hún vegur 15 merkur og er 53 cm og er með 10 tær og 10 putta. Fæðingin gekk mjög vel og er heilsan á þeim mæðgum mjög góð.

Það eru komnar nokkrar myndir á myndasíðuna

kv. Sigurjón

á réttri leið

aldis klukkan 13:56, 26 October 2007

Læknirinn sagði lítið annað en að blóðprufan hefði komið vel út..þannig að lyfin virðast vera að virka. Fór síðan í rit og krullið var sprækt að vanda.

Annars eru óbreytt plön, svo ég mæti í kvöld í gangsetningu..sef heima í nótt og mæti aftur á morgun…framhaldið kemur síðan í ljós.

fimmtudagsblóðprufan..

aldis klukkan 10:45, 25 October 2007

jæja, þá er ég búin að fara í fimmtudagsblóðprufuna (sem sagt í blóðprufu þriðja fimmtudaginn í röð). Á morgun förum við svo aftur til fæðingarlæknisins og fáum þá sennilega að vita e-rjar niðurstöður. Veit samt ekki hvort niðurstöðurnar hafi e-ð að segja þar sem ég er nú komin með tíma í gangsetningu annað kvöld..vó annað kvöld, það er stutt í það!

3200 g

aldis klukkan 8:51, 22 October 2007

Vid Sigurjon forum til ljosmodurinnar adan (fengum timann longu adur en tetta lifrardot kom i ljos). Tad var mjog fint, vid sogdum henni fra gangsetningunni og hun for adeins betur i gegnum tetta med okkur. Sagdi okkur lika fra tvi ad ferlid gæti tekid allt ad viku..e-d sem læknarnir minnast vist litid a….en i 80% tilfella gengur gangsetning bara vel.

Eftir bumbupotid giskadi hun a ad barnid væri ordid 3200 g eda tæpar 13 merkur.

Annars er bara allt i godu her..tetta er annad hvort sidasti eda næstsidasti dagurinn minn i skolanum i bili..hehe

tæp vika til stefnu

aldis klukkan 16:33, 20 October 2007

Er sem sagt komin með “tíma” í gangsetningu næsta föstudagskvöld. Þannig að væntanlega gerist e-ð um eða rétt eftir helgina. Mér skilst að maður mæti þarna að kvöldi til og e-rri vatnsfylltri blöðru er komið fyrir. Síðan fer maður heim og leyfir blöðrunni að vinna vinnuna sína. Svo er mæting næsta morgun og ef allt hefur gengið vel er belgurinn sprengdur…og að lokum birtist barn :)

fastagestur á..

aldis klukkan 10:07, 19 October 2007

..sjúkrahúsinu..hehe
Já, það er ekki hægt að segja annað. Ég fór í blóðprufu í gær og til læknis í dag. Síðan fer ég til ljósmóður á mánudag, í rit á þriðjudag, blóðprufu á fimmtudag og til læknis næsta föstudag. Veit bara ekki hvað ég á að gera á miðvikudaginn..hehe

Læknirinn var sæmilega sáttur við niðurstöðuna úr blóðprufunni, en ég fékk samt meira af “undralyfinu” og svo stefnir í gangsetningu. Veit ekki ennþá hvenær, en fæ sennilega e-ð að vita í dag.

Þannig að nú er bara að byrja að panikka og ganga frá lausum endum áður en krullið mætir á svæðið ;)

vesen, pesen..

aldis klukkan 13:45, 14 October 2007

..lifur, pifur.
Ég fór til læknis í síðustu viku, bara svona standard skoðun á meðgöngunni (því hérna í DK er þessum skoðunum dreift á ljósmóður og heimilislækni) og allt í góðu með það, blóðþrýstingurinn fínn og svona.

Ég nefndi síðan við hann að ég væri með mikinn kláða um líkamann og að ég hafi lesið að það gæti e-ð tengst lifrinni (þó svo að í flestum tilfellum sé þetta ekkert alvarlegt og bara kallað meðgöngukláði) og spurði hvort það væri hægt að kanna það. Hann tók bara vel í það og ég fékk tilvísun í blóðprufu næsta dag. Og viti menn, hann hringdi í mig á föstudaginn og sagði að e-ð hafi mælst í blóðinu og að hann hafi pantað fyrir mig skoðun á spítalanum seinna um daginn.

Nú, ég dreif mig þá úr skólanum og var mætt tímanlega inná biðstofuna…við tók löööng bið. Loksins kom að mér og ljósmóðirin spurði mig útúr og þreifaði aðeins bumbuna. Síðan fylgdi hún mér yfir á fæðingardeildina til að fara í rit. Þar vingaðist ég við biðstofuna í nokkra stund (og vorkenndi aumingja stelpunni sem var með hríðar). En þetta var einmitt á vaktaskiptum..hvort sem það skipti máli eða ekki.

Að lokum var mér vísað inná litla stofu þar sem ég fékk svona gismó (mælitæki) um bumbuna..þar var ég síðan í korter eða svo. Ritið kom bara vel út að mér skildist og ég var send heim með töflur við þessu lifrardæmi og með skilaboð um að hringja á mánudag og panta tíma í nýja blóðprufu og tíma hjá lækni á föstudag.

Þannig var nú sagan af því.

Þegar ég kom heim fór ég síðan að velta þessu fyrir mér og ákvað að googla lyfið til að vita e-ð um þetta. Komst að því að það er ekki skráð í DK og þess vegna verður maður að fá það á fæðingardeildinni. Komst líka að því að þetta getur verið ansi alvarlegt og ef gildin í blóðinu eru mjög há og stundum er fæðing sett í gang á undan áætlun. Ég veit hins vegar ekkert hvernig þetta er hjá mér..og vona bara það besta.

haustfri i næstu viku..

aldis klukkan 9:28, 9 October 2007

..jeij. Eg var eiginlega buin ad gleyma tvi ad tad er ekki kennt i næstu viku. Fattadi tad bara i gær tegar kennarinn sagdi: sjaumst eftir 2 vikur.

Tad er nu ekkert plandad i friinu, ætli eg slaki ekki bara a og svona, tar sem Sigurjon er ekki i frii.

Next Page »