mánaðargömul..
..í dag, alveg magnað. Það eru komnar inn mýjar myndir (notendanafn: aldis og lykilorð: krulla).
Ég er búin að panta tíma í 5 vikna skoðun hjá heimilislækni fyrir Krullu, förum miðvikudaginn 5. des í hana (hún verður sem sagt rúmlega 5 vikna þá). Sú stutta hefur annars verið pínu óróleg undanfarið og vill þá helst hanga bara á brjósti…humm
Það er annars gaman að sjá hvað hún “fullorðnast” hratt, mikill munur á því hvað hún er farin að horfa meira í kringum sig og vera meira vakandi. Síðan er brosið alveg að koma..hingað til hafa þetta bara verið prumpubros eða glott í svefni en ég er ekki frá því að e-ð sem hægt er að kalla bros sé að koma. Spurning hvenær maður á að úrskurða “THE” fyrsta bros..