blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

reykt brjóstamjólk

aldis klukkan 13:11, 28 December 2007

Humm..allt þetta reykta kjöt virðist ekki hafa farið allt of vel í Krullu litlu. Höfðum nú alveg heyrt af þeirri hættu en það leit allt vel út framanaf svo ég borðaði bara eins og ég vildi. Það var ekki fyrr en seint á jóladagskvöld og annan í jólum sem hún fór að pirrast. Ætli hangikjötið á jóladag verði ekki bara blóraböggullinn…

Sigurjón er annars búinn að skella inn (langþráðum) myndum á netið. Þetta eru tvö albúm, desember og jól og kannski ég taki það fram að skilin þar á milli eru ekki mjög skýr. Það eru ansi jólalegar myndir í desemberalbúminu (myndir fyrir jólakortin) og líka ójólalegar myndir í jólaalbúminu. Best að minna á að notendanafnið er aldis og lykilorðið krulla. Myndasíðan er: myndir.aldisrun.com

Sólrún fór heim í gærkvöldi en það var mjög gaman að hafa hana hérna yfir jólin. Hefði þurft að vera lengur, því við náðum t.d. ekki að horfa á alla Stellu í orlofi myndina saman.

Gleðileg jól

aldis klukkan 23:39, 24 December 2007

Hó, hó, hó..gleðileg jól allir vinir nær og fjær :)

Jólahald hér á bæ gekk mjög vel. Mamma, pabbi og Sólrún komu til okkar í mat. Þetta eru fyrstu jólin okkar Sigurjóns saman (höfum hingað til hittst eftir matinn) og var matseðillinn blanda úr báðum fjölslyldum. Aspassúpa í forrétt (frá mér) hamborgarhryggur (frá báðum) og súkkulaðibúðingur í eftirrétt (frá honum).

Eftir matinn tók nú aldeilis við pakkaflóð og ég er ekki frá því að yngsti fjölskyldumeðlimurinn hafi átt vinninginn í fjölda..hehe..ekki það að aðrir hafi ekki fengið margar gjafir líka.

Jæja, best að fara að koma sér í háttinn..því sumir (Krulla) eru orðnir pirraðir.

kominn tími á blogg

aldis klukkan 13:29, 21 December 2007

Jæja, ég hef nú ekki bloggað heillengi, enda búin að vera í prófum. Þau gengu hins vegar bara mjög vel miðað við undirbúning og ég er nokkuð viss um að hafa náð þeim báðum..og jafnvel staðið mig nokkuð vel í öðru þeirra :)

Verkefnið sem átti að skila í síðasta lagi í dag er hins vegar ekki tilbúið og við skilum því sennilega á milli jóla og nýárs. Ég hef nú ekki gert mikið í þessu verkefni en ég gerði hins vegar meirihlutann af því fyrra..þannig að vinkona mín er eiginlega að redda þessu.

Jólaundirbúningur hefur verið takmarkaður en nú er bara að gera það sem við getum um helgina..jólin “koma” á mánudaginn hvort sem við erum tilbúin eða ekki..hehe

5 vikna skoðun..

aldis klukkan 10:37, 6 December 2007

..við fórum með Krullu í 5 vikna skoðun til heimilislæknisins okkar í gær. Honum leist (að sjálfsögðu ;) ) vel á dömuna og hún var stillt og prúð hjá honum. Hún hefur heldur betur tekið vaxtarkipp frá því hjúkkan mældi hana..lengdist um rúma 3 cm á 16 dögum..váá. Það var nú ekki svo nákvæm þyngdarmæling..bara ég á vigtina, hún núllstillt og svo fékk ég krullu í fangið..hehe. Þannig að hún vó 4600g í fötum og með bleyju.

Mamma er annars á fullu í ömmuhlutverkinu þessa dagana. Hún hefur verið að koma til mín á daginn, svo ég geti e-ð lært undir prófin mín. Krulla hefur nefnilega ekki verið að taka neitt sérlega langa blunda á daginn. Þetta munar mjög miklu fyrir mig, en það er töluverður munur á að hafa bara örfáa tíma á dag í próflestri og að hafa hálfu sólarhringana eins og áður. Ætli maður verði ekki að læra að nýta tímann vel og sleppa þessu venjulega próflestrarhangsi…hehe