blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

Það helsta í fréttum..

aldis klukkan 18:35, 30 January 2008

..ég hef nú ekki bloggað mikið undanfarið, svo hér er smá update.

Krulla var skírð sl. sunnudag og þá var nafnið hennar opinberað. Hún heitir Eyrún Lára (Sigurjónsdóttir). Nafnið hennar var reyndar komið í þjóðskrá og Íslendingabók..hehe
Við héldum svakalega veislu og Eyrún fékk fullt af góðum gjöfum. Takk fyrir allt og líka takk fyrir aðstoðina í veislunni.

Ég er búin að fá einkunnirnar mínar, fékk 7 í verkefnakúrsinum (á nýja skalanum sem er -3 00 02 4 7 10 12) og 12 í báðum prófkúrsunum. Ég er alveg gáttuð yfir þessum árangri, því eins og flestir vita mætti ég ekki í skólann eftir 27. okt. Hafði einnig takmarkaðan tíma í próflestur og fór fram að gefa brjóst í prófunum..heheh, kannski maður ætti bara að gera meira af því að eignast börn ;)

Við komum heim til DK í gær. Það var nóg pláss í flugvélinni og líka rólegt í Leifsstöð…þvílíkur munur.

Sigurjón fór til Jótlands að vinna í morgun og kemur aftur á föstudag.

Ég fór með Eyrúnu Láru til læknis í dag og hún var bólusett. Fékk tvær sprautur, sú fyrri gekk mjög vel en hún fór aðeins að gráta þegar hún fékk þá seinni. Pabbi kom með mér að gamni því Sigurjón var í burtu.

Við erum að fara að flytja. Erum komin með íbúð á Tröröd kollegíinu (íbúð 12C) og fáum afhent 1. febrúar. Við verðum samt með báðar íbúðirnar út mánuðinn, enda ekki byrjuð að pakka.

Þá er það helsta komið…

snjór..

aldis klukkan 14:08, 18 January 2008

..það er snjór úti, enda komin til Íslands :)
Ferðalagið gekk vel og Krulla var bara hess á leiðinni.

loksins, loksins..

aldis klukkan 15:27, 14 January 2008

..er yngsti fjölskyldumeðlimurinn farinn að sofa aðeins á daginn. Hef undanfarna daga farið aðeins út með Krullu í vagninum og náð að láta hana sofa aðeins áfram úti í garði. Þvílíkur munur að vera ekki með hana í fanginu alveg allan daginn, og ná jafnvel að vaska upp ;)

Í byrjun vaknaði hún alltaf þegar ég (eða aðrir) hætti að keyra og var líka lengi að sofna..en núna sofnar hún oftast fljótt og sefur e-ð áfram…jeij

Spurning hvort þetta fari allt í klessu aftur þegar við f-rum til Íslands..því við tökum vagninn ekki með þangað…en við erum allavega búin að panta flug, komum til Íslands seint um kvöldið 17. jan og förum aftur 29. jan.

Var annars að skella inn myndum, frá áramótunum og fyrri partinum í janúar

nú styttist í Íslandsferð..

aldis klukkan 19:39, 8 January 2008

..en við stefnum að því að panta flug á morgun.

Hjúkkan í ungbarnaeftirlitinu kom í heimsókn sl. föstudag og nýjustu tölur eru 5,5 kg og 60 cm.

gleðilegt ár..

aldis klukkan 0:24, 1 January 2008

..og takk fyrir það gamla.

Mamma og pabbi komu í purusteik til okkar. Ég hins vegar treysti því ekki alveg að puran myndi heppnast og keypti svínapuru-snakk til að hafa með..sem var fínt því það var takmarkað framboð af heppnaðri puru.

Við Sigurjón skutum smá upp í garðinum og Krulla var útí glugga með ömmu og afa. Síðan skáluðum við í kampvíniog fengum kransaköku (til að vera svolítið dönsk) áður en við Sigurjón fórum aftur út að skjóta.

Það var töluvert af flugeldum í nágreninu, en þó ekkert eins og í Reykjavík um miðnætti..hehe