myndir, myndir, myndir,
myndir, myndir og fleiri myndir eru komnar a myndasíðuna www.myndir.aldisrun.com (notendanafn: aldis og lykilorð: krulla). Núna er bara málið að setja frekar myndir inn jafnóðum, því svona vænn skamtur tekur ansi langan tíma.
myndir, myndir og fleiri myndir eru komnar a myndasíðuna www.myndir.aldisrun.com (notendanafn: aldis og lykilorð: krulla). Núna er bara málið að setja frekar myndir inn jafnóðum, því svona vænn skamtur tekur ansi langan tíma.
..hvaða afsökun ég hef núna fyrir því að hafa ekki bloggað í mánuð. Auðvitað hef ég haft nóg að gera, en æeg hefði svo sem getað skrifað nokkrar línur.
En hér er ég.
Ég er stödd á Íslandi með Eyrúnu. Sigurjón er heima að vinna (og sennilega líka að leika sér í tölvunni) og síðan fer hann á námskeið nr. 2 í Belgíu á mánudaginn. Þetta var nú frekar óvænt Íslandsferð sem kom til því að tengdamamma komst ekki út til okkar síðustu helgi eins og var planað.
Flugið hingað gekk nú bara betur en ég átti von á, en ég er mjög fegin að fara með Sólrúnu til baka (hún verður í DK fram á annan í páskum).
Eyrún Lára var annars ansi stúrin á föstudagskvöldið og á tímabili héldum við að henni væri illa við ömmu sína og afa sinn
en sennilega var um að kenna svefnleysi og pirringi..hehe (þetta var pínu eins og við værum að herma eftir Friends atriðinu með barnið og Monicu)
Ég er annars byrjuð í mömmuhóp á kollegíinu og það er fínt (finn það samt að ég væri alveg til í að vera í alvöru barneignarfríi). Við erum 5 og Eyrún er elsta barnið (það er reyndar strákur sem er fæddur degi seinna líka) og það yngsta er bara 4 vikna. Og þó það hljómi eins og klisja, þá þrúi ég því varla að hún ghafi verið svona lítil….
Við litla fjölskyldan erum búin að fara tvisvar í sund. Ætluðum fyrst að fara í ungbarnasund, en tíminn á námskeiðinu hentaði ekki. Það hefur samt bara gengið vel, Eyrún var nú eiginlega bara hissa á öllu þessu vatni. En ég verð að viðurkenna að það er dálítil kúnst að koma okkur báðum í sturtu og svona.
Fyrrnefnd dama tók síðan upp á því að vilja ekki lengur pela..er allavega frekar ósátt við hann. Kemur betur í ljós á næstunni hvort það er viðvarandi ástand (sem ég vona ekki, því hann er lykillinn að mínu námi).
Jæja, best að fara að sinna Eyrúnu, skrifa fleira sem er í fréttum við tækifær…
Já, til hamingju með daginn Abba ![]()