Long time no write..
..já þetta er alveg ferlegt. Það líður svo langt á milli blogga að flest bloggin eru bara upptalning á helstu viðburðum…og þetta verður það þá bara líka.
Amma mín kom í heimsókn til DK.
Mágur minn (hljómar asnalega..hehe) var hjá okkur í 2 vikur.
Eyrún Lára fór í sína aðra bólusetningu.
Eyrún Lára er orðin 66 cm og 7,8 kg.
Það er komið gott veður hérna hjá okkur og við erum farin að grilla á hverju kvöldi ![]()
Ég fór út að borða með íslensku stelpunum á kollegíinu.
Fórum í afmælisgrill til Guðrúnar Bjargar í gær.
Við erum loksins komin með ljós yfir borðstofuborðið.
Ætli ég láti þessa upptalningu ekki bara duga í bili..hver veit nema bloggið verði líflegra á næstunni ![]()