til hamingju mamma og pabbi..
..með 31 árs brúkaupsafmælið
Já, ég held ég hætti því í bili að lofa öllu fögru í blogg-líflegheitum..er ekki viss um að ég geti staðið við það.
En allavega þá erum við ennþá á lífi og búum ennþá í DK..hehe Eyrún Lára er rétt að skríða í 70 sentimetrana og er líka rétt alveg að fara að skríða. Hún er farin að nýta næturnar í hinar ýmsu æfingar sem ekki er tími fyrir á daginn (eða hvað?!?) í nótt tók hún t.d. smá frussuæfingu.
Ég er að fara í próf á föstudaginn 23/5 og síðan 28/5 og loks 6/6. Prófin leggjast ekkert sérstaklega vel í mig en maður gerir bara eins vel og maður getur (er ekki bara aðal atriðið að vera með?..eða á það kannski ekki við um þetta?) Próflestur hefur verið af skornum skammti en mamma er dugleg að passa svo ég geti lært og mætt í prófin. Svo nota ég líka tímann þegar Sigurjón er í barneignarleyfi…jæja, best að halda áfram að læra.