tvær tennur..
..og ekki ólíklegt að fleiri séu á leiðinni. Já, það er ekkert grín að láta Eyrúnu bíta sig t.d. í nefið..hehe
En hér í Danmörku er allt með kyrrum kjörum..annað en á Íslandi þar sem jarðskjálftar og ísbirnir herja. Ég er annars stödd í tíma (já ég veit ég á að vera að fylgjast með en það er einn strákur svo mikið að rökræða við kennarann að ég missti þráðinn) í sumarkúrsi. Kúrsinn er búinn að vera þæginlegur..byrjar oftast kl. 10 á morgnanna og er yfirleitt búinn fyrir kl. 15.
Tengdó eru annars í heimsókn, þau buðu okkur með sér til Hamborgar síðustu helgi og það var bara gaman. Röltum um og kíktum í búðir og svona.
Jæja, ég er farin að vekja athygli hérna..vona að fólk haldi bara að ég sé svona dugleg að glósa..