blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

Neistaflug..

aldis klukkan 22:05, 31 July 2008

here we come :)
Við familían erum sem sagt stödd á Íslandinu góða og á leiðinni á Neskaupstað á morgun og verðum fram á þriðjudag.
Allt gott að frétta annars, efri framtennurnar á Eyrúnu eru komnar í gegn og á fleygiferð upp eða eiginlega niður..hehe
Verðum annars á landinu til 20. ágúst..jæja, verð að fara að pakka….

Myndir, myndir..

aldis klukkan 8:25, 21 July 2008

..fullt af myndum
www.myndir.aldisrun.com (notendanafn: aldis og lykilorð: krulla)

tíminn líður..

aldis klukkan 6:22, 18 July 2008

..ég veit svo sem að þetta er engin ný uppgvötun en í dag eru 5 ár síðan við Sigurjón byrjuðum saman..magnað!

Það eru annars ennþá vandræði með myndasíðuna en tölvusnillingurinn minn ætlar að reyna að laga það um helgina.

ps. það kemur íslenskur tími þegar ég blogga en réttur tími er +2

fyrsti hitinn

aldis klukkan 13:51, 13 July 2008

Jæja, það hlaut að koma að því að barnið veiktist…hingað til hefur hún bara fengið smá kvef. Eyrún fékk allt í einu hita í gærnótt, svo það hafa verið tvær svefnlitlar nætur hér á bæ (so far). Hún er sæmilega hress að öðru leiti og virðist vera að hressast og hitinn er líka búinn að lækka. Hélt kannski að það væri fleiri tennur að koma en “bókin” segir að hiti sem sé yfir 38°C í meira en sólarhring tengist ekki tanntöku…

Það er annars lítið í fréttum, nema brunchinn var mjög góður..fengum kampavín og allt :)

Ég er annars að vinna í myndunum..er búin að sortera alveg heilan helling og minnka en eins og er kemst ég ekki inná myndasíðuna..þetta ætti að koma inn á næstu dögum.

aldis klukkan 5:36, 6 July 2008

Einkunnin i faginu sem gekk betur (skár) er komin og ég fékk meðaleinkunnina 7 (prófið gilti 70% á móti verkefnum, svo sennilega fékk ég lægra í prófinu). Síðan kom póstur fyrir nokkrum dögum um að e-ð varðandi einkunnina í hinum áfanganum hefði misfarist og hún væri væntanleg í lok ágúst. Mér finnst líkklegt að aðilinn sé bara í sumarfríi sem á að redda þessu, frekar en að það taki svona langan tíma. Ég er reyndar ekki í námslánapakkanum eins og er en þetta kemur sér alveg einstaklega illa fyrir þá…en þetta hefur reyndar áhrif á hvaða kúrsa ég vel fyrir næstu önn.

Eyrún var vigtuð og mæld um daginn..tölurnar eru 72 cm og 9,5 kg. Stökk úr meðarkúrfu í næatu fyrir ofan. Á sama tíma var gert athyglispróf…hún var sofandi úti í vagni og var vakin fyrir það…það gekk ekki betur en svo að við voruim komin með tilmæli um að fara með hana til læknis útaf hugsanlegu heyrnarleysi…hehe..en það var dregið til baka því hún rankaði við sér í lokin.

Sólrún systir er annars í heimsókn þessa dagana..svo við erum búin að vera á útstáelsi..í dag erum við að fara í brunch á Dangla Terr (veit ekki hvort þetta er rétt skrifað)..miklar væntingar í gangi, þar sem það kostar 350 á mann..læt vita hvernig það fer.