Það hlaut að koma að því..
..að maður ætti grátandi barnið í flugvélinni. Eyrún missti út seinni lúrinn sinn og sofnaði ekkert í fluginu og var skapið í samræmi við það
…við erum sem sagt komin heim til Danmerkur
Kerran brotnaði aðeins í fluginu..erum að vinna í að fá það bætt.
Fórum í dag að kíkja aftur á leikskólann og Eyrúnu leist vel á..fór bara að leika sér á meðan við kláruðum að skoða..hehe
Já og ég var að fá einkunnina úr síðasta prófinu. Fékk 02 sem er lægsta einkunnin sem er ekki fall, en þess má geta að það var 47% (52% ef maður telur þá með sem ekki mættu) fall í áfanganum og algengasta einkunnin var falleinkunnin 00 (síðan er hægt að fá -3..ég veit, mjög spes)