blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

snjór..

aldis klukkan 16:15, 24 November 2008

hérna í Danaveldi er kominn snjór. Ekkert að ráði samt ennþá..spurning hvort maður eigi að fjárfesta í snjóþotu, eða hvort það taki því varla.
Anna kom í stutta heimsókn um helgina að “ammast”, það gekk bara vel fyrir utan að við sendum hana til Íslands með danska pest…sorrý
Mamma kemur síðan næstu helgi að fá mánaðarskamtinn sinn af Eyrúnu…hehe

Fyrirmyndar fjölskylda..

aldis klukkan 7:59, 17 November 2008

..hehe, já við vorum mætt í dýragarðinn kl. 9 í gærmorgun þegar opnaði. Við vorum þarna í hópi annars fjölskyldufólks sem á það til að taka daginn snemma. En þetta var alveg snilld..
..enda
- lítil umferð á leiðinni
- nóg af bílastæðum..nálægt
- engin röð að komast inn (komum kannski rétt rúmlega kl.9 þannig að þeir sem biðu eftir opnun voru farnir inn)
- nóg pláss til að skoða dýrin og labba um
- þurftum ekki að kaupa okkur að borða
-nóg eftir að deginum þegar heim var komið (getur reyndar stundum talist ókostur..hehe)
Við fórum síðan heim um kl. 11 og borðuðum heima og svo fór Eyrún út í vagn. Góð ferð í alla staði sem sagt.

Eyrún er eins og sést kannski hér að ofan, farin að sofa bara einn lúr á daginn. Það gengur bara vel, enn sem komið er. Vonandi fer hún þá að komast e-ð út á leikskólanum (hingað til hefur hún verið sofandi í útiverunni).

Það er annars farið að vera meira að gera í skólanum hjá mér, þar sem verkefnaskil nálgast..en það ætti nú að hafast :)

Tengdamamma er annars væntanleg næstu helgi í heimsókn og mamma kemur vonandi helgina eftir (hún er ekki búin að panta).

Langt síðan síðast..

aldis klukkan 8:06, 6 November 2008

..já ansi langt síðan ég bloggaði. En það vill verða þannig að fyrst það er “hvort eð er” svo langt síðan, þá getur maður alveg eins frestað því aðeins lengur…

Anyways við erum enn á lífi hérna í DK og höfum ekki lent í miklum “kreppuvandræðum”, en það sem bjargar okkur er að Sigurjón er með launin sín í dönskum krónum..jeij. Reyndar er líka komið í ljós að það var ekkert svo sniðugt að færa sparnaðinn okkar til Íslands á genginu ca 15..en það er of seint að gera e-ð við því.

Eyrún er búin að eiga afmæli og það er ekki hægt að segja annað en að veislan hafi verið vel sótt enda gerði fólk sér ferð til DK. Já, það er ótrúlegt að hugsa til þess að það er liðið rúmt ár síðan við Sigurjón fórum af spítalanum með eitt stykki krull.

Svo er bara kominn nóvember og jóladótið farið að fylla búðirnar…

Ég á að skila verkefnum 5. og 15. desember og fer síðan í próf þann 18. des.

Við vorum að panta flug til Íslands og var niðurstaðan sú að fara til Íslands yfir jólin en fara til DK aftur fyrir áramót.
Flugin eru: Aldís og Eyrún CPH-KEF 19.des kl.12:15, Sigurjón CPH-KEF 21. des kl. 23:45 og öll saman til baka 29. des kl. 7:15 Allt eru þetta (áætlaðir) brottfarartímar að staðartíma. Já og við erum með Icelandexpress í fyrsta skipti í langan tíma en í þetta skipti munaði ca. 30.000 kr svo við eiginlega gátum ekki annað.