blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

Nú hef ég litla sem enga..

aldis klukkan 12:17, 24 February 2009

..afsökun fyrir því að blogga ekki reglulega. Ég er nefnilega byrjuð á lokaverkefninu mínu og er með skrifstofu (með tveimur öðrum) og tölvu. Þannig að enn og aftur stefni ég á tíðari fréttablogg..hehe

Allavega, þá fórum við Sigurjón í skíðaferð til Sälen í Svíþjóð. Mamma og pabbi (hluta af tímanum) pössuðu Eyrúnu Láru á meðan heima hjá okkur. Fórum á bílnum..já, litla bláa bílnum okkar og hann stóð sig eins og hetja. Vorum heppin með færð á leiðinni “uppeftir” en lentum í aðeins leiðinlegri færð á leiðinni til baka..ekkert svakalegt en svona smá slabb og snjókoma alla leið + þá vorum við að keyra í myrkri. Tók ca 10 tíma hvora leið með tveimur stuttum stoppum..

Ein skondin saga frá leiðinni á skíði..við vorum farin að nálgast þegar okkur varð hugsað til þess að það væri kannski vissara að fjárfesta í sterkari frostlegi fyrir rúðupissið (venjulegur þolir oftast -18°C) því ég þekki það af eigin reynslu að það getur orðið mun kaldara í Svíþjóð (það tekur því alltaf að setja á sig vettlinga..sérstakelga ef maður er á hjóli…). Við stoppuðum á fystu bensínstoð sem við fundum og keyptum e-ð eitur sem á að blanda 1:2 við vatn til að þola -35°C…sem við töldum nokkuð öruggt. Nú við helltum þessu í án þess að blanda, því það var nú slatti í fyrir. Það var by the way alveg skítkalt úti. Alveg svona finnur hárin í nefinu stífna..hehe..en samt sem áður voru tvær stelpur að selja heimabakað (sennilega frosið) brauðmeti fyrir utan bensínstöðina.
Jæja, við keyrðum af stað og Sigurjón sprautaði vel á rúðuna og var að grínast með að það væri vissara að tæma gamla pissið úr leiðslunum (nei hann pissaði ekki á bílinn á ferð..er að tala um rúðupissið). Svo svona 5 mínútum seinna kemur ekkert..alveg magnað fannst okkur, að það skyldi frjósa rétt EFTIR að við gerðum e-ð í málunum….þannig var sagan af því.

Best að halda áfram að hringja í leikskóla og biðja þá um að taka þátt í verkefninu mínu.