blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

Komin aftur til DK..

aldis klukkan 6:49, 29 May 2009

…við mæðgur skruppum sem sagt til Íslands í síðustu viku. Það var mjög gaman og ég er ekki frá því að mamma og pabbi hafi notið þess að hafa litla skottið hjá sér:)
Núna erum við sem heima í DK og tengdó eru komin í heimsókn, enda er hún Eyrún Lára líka í uppáhaldi hja þeim..hehe

Það er annars komið að kaflaskiptum í verkefninu mínu, siðasta brunaæfingin var í vikunni og þá er bara að koma skýrslunni almennilega af stað. Er að fara á fund með leiðbeinaandanum mínum á eftir og vonandi kemur andinn yfir mig í framhaldinu.

Veðrið hefur annars verið gott hér, nema í gær kom alveg dúndrandi haglél. Varði þó ekki lengi og skömmu seinna var sólin komin aftur á sinn stað (ekki í bókstaflegri merkingu).

Slökkviliðið sýndi sig

aldis klukkan 9:24, 13 May 2009

Ég var að koma heim frá enn einni brunaæfingunni (sem ég stend fyrir á leikskólum í sambandi við verkefnið mitt). Æfingin gekk vel og þessi leikskóli var svo heppinn að slökkviliðið mætti á svæðið (sko ekki óvart) og sýndi tvo bíla. Einn leikskólakennarinn fékk að fara upp í körfubílnum og slökkviliðsmennirnir sparutuðu líka vatni. Þetta vakti að sjálfsögðu mikla lukku.
Núna á ég bara tvær æfingar efir og..hummmm…heila skýrslu.

Var annars að fá bréf um að búið væri að ráða í stöðuna sem ég sótti um (sem sagt ekki ég)…þá er það allavega komið á hreint.