Skrifi, skrifi, skrif..
..eða reyni, reyni, reyn.
Er að reyna að komast á flug með skýrsluna, er ennþá í flugtaki eða kannski bara boarding..allavega komin á go to gate!
Það var annars sumarhátíð á leikskólanum í gær…við fyrirmyndaforeldrarnir gleymdum því. En það reddaðist, Sigurjón fattaði þetta þegar hann sótti Eyrúnu og við fórum bara aftur í leikskólann (Eyrún var frekar gáttuð á þessu). Það átti reyndar að koma með “picknick körfu” með mat og áhöldum. Ég hljóp heim og skar niður melónu og greip kex og ost. Það var fínt, nenntum ekki að vera lengi þannig að við borðuðum kvöldmat þegar við komum heim.
Eyrún tók þátt í sínu fyrsta skemmtiatriði..eða átti að taka þátt. Hún (eins og flest hin börnin) stóð bara stjörf yfir þessu öllu saman á meðan leikskólakennararnir sungu…jeij