Spam komment..
..í fyrstu leit út fyrir að allir væru æstir í að kommenta hjá mér..verst að ég kannast ekkert við þessa Ambient og John286..hehe.
Þetta hefur versnað til muna undanfarið, veit ekki af hverju. Það er samt e-r filter sem stoppar fullt..humm. Tók mig til og eyddi slatta áðan, en ég get bara merkt við eina blaðsíðu í einu (ca. 20 komment) og eytt eða tilkynnt…og blaðsíðurnar eru yfir 8000.
Anyways..þá er ég að leggja lokahöndina á verkefnið mitt, finn samt alltaf e-ð sem gleymdist eða þarf að bæta. Það hefur ekki verið mikið stress í gangi sem betur fer og vonandi helst það. Hef verið nokkurn vegin í fríi á kvöldin og um helgar..jeij
Mamma og pabbi voru hérna í 2 vikur og það var æði. Eyrún naut sín í botn og þeim fannst gaman að kynnast henni almennilega. Veðrið var gott fyrstu og síðustu dagana af þeirra dvöl en töluverð rigning á milli. Fórum saman í Lególand og Eyrún fór í fullt af tækjum (miðað við síðasta sumar..hehe).
Núna er sem sagt vika pása á heimsóknum en tengdó koma svo næstu helgi.