Á morgun..
..komum við Eyrún til Íslands…reyndar seint um kvöldið. Ég vona svo innilega að það verði laust sæti í vélinni…því ég er náttúrulega komin með bumbu. Pældi ekkert í því þegar ég pantaði miðann…en við erum sem betur fer með Icelandair sem er nú heldur rýmra en hitt.
Ég er annars byrjuð að vinna hjá DTU og ber titilinn “videnskablig assistant”. Svo er planið að ég byrji formlega í doktorsnáminu í október…þannig að það er eins gott að umsóknin verði samþykkt.
Sigurjón er annars að fara til UK á miðvikudaginn útaf vinnunni og kemur svo til Íslands næstu helgi.
Hlakka til að sjá ykkur öll
Ég verð með sama gamla símanúmerið mitt (867-4176) en ATH. mamma og pabbi eru flutt í Kópavoginn..svo ekki koma í óvænta heimsókn á Tómasarhagann..hehe