þvílíkt veður
..búið að vera svaka gott veður undanfarið…Eyrún er á nærbuxum og nærbol þegar ég sæki hana á leikskólann. Við skelltum okkur annars í tjaldútilegu síðustu helgi, bara eina nótt til að prófa tjaldið. Það var gaman og tjaldið var stórt og gott.
Í þessu veðri er ég mjög fegin að vera með skrifstofu sem snýr í norður..þannig það er nokkurn vegin líft hérna til að skrifa. Það styttist annars óðum í skil og ég á aðeins of mikið eftir..en þetta smellur saman á endanum..það bara verður að gera það
Mamma og pabbi komu annars í gærkvöldi…gista í annarri íbúð á kollegíinu. Mjög fínt, bara ein í búð á milli svo það er sameiginlegur garður. Labbaði með Eyrúnu í morgun yfir að banka bakdyramegin..hehe