blog.aldisrun.com

enn eitt bloggið…

4 dagar..

aldis klukkan 12:20, 31 March 2009

..þangað til við mætum á svæðið.
Eyrún datt á leikskólanum í gær og beit í vörina..var ansi bólgin (vörin) þegar ég sótti hana. Þetta gerðist víst bara rétt eftir að ég fór frá henni í gærmorgun, en hún hlýtur að hafa verið fljót að jafna sig, því það var ekki hringt í okkur. Það var reyndar eins gott ef út í það er farið því ég var að gera tilraun í gærmorgun og Sigurjón á Jótlandi…hefði verið ansi mikið vesen (en auðvitað hefði því verið reddað). Vörin leit betur út í morgun, en þetta tekur sennilgea nokkra daga að fara alveg.

Í fyrsta skipti í langan tíma..

aldis klukkan 12:37, 26 March 2009

..sótti ég ekki um frest til að skila skattframtalinu. Enda ekki mikið sem þurfti að fylla út í þetta skiptið…

á milli stærða..

aldis klukkan 13:36, 25 March 2009

..hver kannast ekki við það að vera á milli stærða í e-u? td. skóm eða fötum nú eða súkkulaði (lítið er nú of lítið, tekur því varla að taka það úr bréfinu og maður kann varla við að fá sér family-size einn..hehe). En Eyrún er núna komin úr ungbarnastærðunum (<86) barnastærðirnar (92<) en samt er sumt í barnafatadeildinni ekki alveg að gera sig. Td. er hálsmálið á stelpubolunum fullflegið fyrir minn smekk, maður þarf þá allavega að passa að samfellan sé í stíl..hehe :)

væntanleg fjölgun í fjölskyldunni..

aldis klukkan 12:27, 23 March 2009

..hefði verið fyrirsögnin ef ég hefði bloggað í gær. Við keyptum nefnilega fiskabúr á laugardaginn en við keyptum fiskana í dag. Við eigum sem sagt fiska núna. 6 sverðfiska, 5 gúbbífiska og eina ryksugu..hún hefur fengið nafnið Roomba (en okkur langar alveg líka í svoleiðis ryksugu).

Fyrsta tilraunin mín fór annars fram áðan. Hún gekk vel myndi ég segja, allavega miðað við fyrstu tilraun. Sigurjón kom og hjálpaði mér og það munaði miklu. Þetta var frekar lítill leikskóli (3 deildir) sem var gott svona til að hita sig upp á. Eftir viku fer ég á leikskóla með 8 deildum og á tveimur hæðum..það verður spennandi að sjá hvernig það gengur..hehe

Til hamingju með börnin..

aldis klukkan 14:26, 18 March 2009

..elsku Freyja frænka og Ásberg (eignuðust dóttur í gær) og Finnur og Unnur (eignuðust son í dag). Þessi börn eiga það sameiginlegt að hafa “nýtt allan tímann” sem þeim gafst í móðurkviði…

Nú er ég allavega einu skrefi nær 2.000.000 dollurum..

aldis klukkan 12:46, 17 March 2009

..en ég var áður. Ég hef nefnilega komist yfir “púsluspilið” Eternity II. Þannig að nú á ég bara eftir að leysa það og senda inn lausnina..jeij. Ég á reyndar líka eftir að kanna hvort það vanti e-n kubb í það, það var nefnilega útí þvottahúsi. Þangað setur fólk dót sem það vill ekki eiga lengur en gæti glatt aðra.

En núna á ég allavega möguleika á að vinna mér inn þessar tvær millur ;)

íslensk ýsa..

aldis klukkan 12:54, 15 March 2009

..komin í hús.

Við vorum að sækja fisk sem við pöntuðum; sjófryst, roðlaus og beinlaus ýsuflök og líka fiskibollur. Ýsan kemur í 9 kg pakkningum, svo við keyptum á móti vinafólki okkar. Nú verður íslensk ýsa í matinn einu sinni í viku. Þetta er nú samt ekkert ódýr matur, kostar um 100 dkr/kg…þetta verður allavega sunnudagsmaturinn í kvöld.

Gaman að sjá að fólk er aftur farið að kíkja á bloggið og kommenta..það ætti að halda mér við efnið.

Fór á þriðja leikskólafundinn minn á föstudaginn…sá leikskóli var ofuráhugasamur, ætlar að hafa þrjár æfingar :)

Svona til að svara aðeins GG (og kannski fleirum). Ég er sem sagt í byggingarverkfræði og hef verið mitt á milli “structural” og “building services”, hins vegar fékk ég mikinn áhuga á brunatengdum kúrsum og hef tekið þá þrjá kúrsa sem eru í boði (fire safety in buildings, fire dynamics og stuctural fire safety design). Þess vegna ákvað ég að gera lokavekefni á þessu sviði. Ég hafði svo samband við kennarana sem kenndu mér fyrstu tvo kúrsana (tók síðasta kúrsinn bara í haust) og annar kennarana var til búinn til að vera leiðbeinandinn minn. Það er kona frá Þýskalandi sem býr í Svíþjóð og við tölum saman á dönsku en verkefnið verður á ensku..úff.

Verkefnið snýst um gagnasöfnun til þess að byggja hendútreikninga á rýmingartíma á. Það er sem sagt gróflega hægt að reikna út hvað svona margir eru lengi að komast út úr svona byggingu, en hvergi er til neitt um leikskóla. En verkefnið er ekki “hreint” verkfræðiverkefni af því að óútreiknanlegir þættir kama inní þetta (viðbrögð barna ofl.).

Það má nú alveg fara að vora..

aldis klukkan 14:21, 12 March 2009

..það kæmi sér líka vel fyrir verkefnið mitt. Skekkir töluvert niðurstöður brunaæfinganna ef allir þurfa að klæða sig áður en þeir fara úr..humm..

Fór annars á fund á þriðjudaginn, hann gekk líka mjög vel. Þar eru krakkar frá 3 ára og þó það séu deildir á leikskólanum eru börnin sjaldnast í þeim hópum. Þetta er sem sagt ansi frjálslegt, hver gerir það sem hann vill gera (auðvitað eru líka e-rjir fastir liðir). Verður spennandi að sjá hvernig rýmingin gengur hjá þeim.

Það er byrjað að snjóa hérna, reyndar ekki af miklum krafti..en samt. Það var líka frost í nótt svo það þurfti að skafa af bílnum í morgun..en annars hefur þess ekki þurft í nokkrar vikur.

Til hamingju GG :)

aldis klukkan 13:58, 9 March 2009

með Íslandsmeistaratiltlana…glæsilegur árangur.
Í gær fórum við á sædýrasafn með tengdó og það vara mjög gaman..Eyrún alveg heilluð af fiskunum. Enduðum á því að breyta miðunum okkar í árskort (við Sigurjón þ.e.a.s.) svo við getum orðið fastagestir. Um kvöldið borðuðum við síðan íslenskt lambalæri með öllu tilheyrandi..namminamm

Eyrún fór annars ekki á leikskólann í morgun, hún er með e-a sýkingu í augunum. Var ansi slæm í gærkvöldi og nótt en held/vona að þetta sé að minnka. Reyndi reyndar að ná í lækninn okkar í dag en án árangurs (gengur oftast illa og það er ekkert hægt að bíða í símanum, kemur bara “á tali”. Ég reyni aftur á morgun ef þetta er ekki að lagast.

Ég fór annars á fysta fundinn minn í tengslum við verkefnið mitt. Þetta var ungbarnaleikskóli með 40 börnum. Þau voru mjög spennt fyrir þessu öllu saman en eiga eftir að gera e-a rýmingaráætlun (hver gerir hvað og hvar komumst við út o.s.fr.).

Næsti fundur er á morgun (með öðrum leikskóla), vonandi gengur hann líka vel :)

Hvað er að gerast?..

aldis klukkan 9:26, 6 March 2009

..blogg tvo daga í röð :)

Já, kannski maður fari bara að keppa við Sórúnu systur.
En þá er bara spurning hvað maður á að blogga um, ég er ekki alveg í gírnum til að koma með ofur pistla eins og er, en það kemur kannski seinna.

Í gær (eftir skóla) fór ég með Eyrúnu á bókasafnið. Við hjóluðum þangað eða reyndar hjólaði ég og hún sat í stól aftaná hjólinu. Til að byrja með gat hún ekki hætt að hlæja..hehe..og svo gat hún ekki hætt að hiksta..hehe. Henni fannst mjög gaman á bókasafninu, bæði að skoða bækurnar en líka að skoða dótið. Við hittum Guðrúnu Fönn og Tómas Jökul vini okkar á bókasafninu (vorum búin að mæla okkur mót) svo hluti af tímanum fór í að rífast um dótið. Hún “snappaði” síðan þegar við þurftum að fara heim..vildi helst taka bílabrautina með sér…pínu vandræðalegt.

Tengdaforeldrar mínir koma annars í heimsókn í dag og verða í DK fram á mánudagskvöld.

GG fékstu góðan drátt? ;) (Til að fyrirbyggja misskilning skal það tekið fram að það er búið að draga fyrir Íslandsmótið í borðtennis)

« Previous PageNext Page »